Donnington Grove

Haust 2012

Donnington Grove

Donnington Grove Country Club (40 mín frá Heathrow) er að okkar mati best geymda leyndarmálið á Londonsvæðinu um þessar mundir. Golfvöllurinn sem er hannaður af Dave Thomas er í einu orði sagt frábær upplifun. Dave Thomas þessi hannaði m.a. San Roque vellina á Spáni, Belfry og Bowood. Hann er 6.340 metrar að lengt frá öftustu teigum, par 72. Hótelið er gamall herragarður og er því lítið miðað við nútíma hótel. Herbergin eru 36 talsins. Það er heimilisleg stemning á hótelinu, veitingasalnum og á barnum. Starfsfólkið er vinarlegt og framkvæmdastjórinn Christopher Strong er ekki langt undan, ávallt með bros á vör. Honum er annt um staðinn enda hefur hann borið hitan og þungan af öllum framkvæmdum þar undanfarin ár. Donnington Grove er fyrir þá sem vilja spila frábæran golfvöll á góðum kjörum.

Lokaniðurstaða: "Við elskum þennan golfvöll og vinalegt viðmót starfsfólksins"

Verð frá 99.000 kr. á mann í tvíbýli

Innifalið: Flug, flugvallaskattar og aukagjöld, 3 nætur með morgunverði og 4x 18 holur

Allar nánari upplýsingar og bókanir fara fram hjá GB Ferðum

Þú ert hér:

No user found.