
Garðavöllur, golfvöllur Akurnesinga, er einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Völlurinn er rómaður fyrir fallegt og skemmtilegt umhverfi, góða umhirðu og frábærar púttflatir.
Allir félagar Icelandair Golfers fá aðgang að Garðavelli milli kl. 8:00 og 14:00 gegn 1.200 kr. vallargjaldi fyrir hvern leikinn hring alla virka daga vikunnar, gegn framvísun félagsskírteinis Icelandair Golfers. Tilboðið gildir ekki á rauðum dögum á almanaksári.
Tilboðið fæst aðeins gegn framvísun Icelandair Golfers félagsskírteinis.
Gildir fyrir árið 2012.