Hólmsvöllur í Leiru - aðeins 1.000 kr.

Hólmsvöllur í Leiru - aðeins 1.000 kr.

Hverjum félagsmanni Icelandair Golfers er heimilt að leika 5 hringi gegn 1.000 kr. vallargjaldi sumarið 2012 á Hólmsvelli í Leiru. Hringina er heimilt að leika föstudaga til sunnudaga gegn framvísun félagsskírteinis Icelandair Golfers. 

Hólmsvöllur í Leiru er af mörgum talinn besti 18 holu golfvöllur landsins.  Hann var vígður í núverandi mynd árið 1986, en þá var haldið á vellinum Landsmót í golfi og nýr golfskáli formlega tekinn í notkun. Nú í sumar verður Íslandsmótið í golfi haldið á Hólmsvelli í 6. sinn og veður mikið um dýrðir.  Félagsmenn Icelandair Golfers eru hvattir til að kynna sér þennan frábæra golfvöll, sem er aðeins í 50 mínútna aksturfjarlægð frá Reykjavík.


Gildir fyrir árið 2012.

Til baka

Þú ert hér:

  • > Tilboð
  • > Hólmsvöllur í Leiru - aðeins 1.000 kr.
No user found.