
Hverjum félagsmanni Icelandair Golfers er heimilt að leika 5 hringi án endurgjalds á Katlavelli sumarið 2012. Hringina er heimilt að leika sunnudaga - þriðjudaga gegn framvísun félagsskírteinis Icelandair Golfers.
Katlavöllur á Húsavík er hannaður af Nils Sköld, þeim sama og hannaði Grafarholtsvöl og Hólmsvöll í Leiru. Sumarið 1975 var farið að leika á vellinum eftir núverandi skipulagi en í desember 1974 hafði verið gengið frá 50 ára leigusamningi á landinu við Húsavíkurbæ. Segja má að saga klúbbsins hafi einkennst af mikilli framkvæmdagleði og stórhug án þess þó að menn rösuðu um ráð fram og hefur þess alla tíð verið gætt að hafa skuldir sem minnstar og sjálfboðavinna verið í hávegum höfð. Á síðasta áratug hefur markvisst verið unnið að endurbótum á golfvellinum án þess þó að skipulagi hans hafi verið breytt. Keyptar hafa verið fullkomnar vélar sem hafa gjörbreytt ástandi brauta og flata. Golfskáli var stækkaður fyrir nokkrum árum auk þess sem gerð hefur verið ný og glæsileg æfingaflöt við 1. teig. Margoft hefur þeirri hugmynd skotið upp kollinum að stækka völlinn í 18 holur en hingað til hefur niðurstaðan verið að einbeita sér að því að gera núverandi völl sem bestan úr garði enda félagar fáir á mælikvarða golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu en skráðir félagar í GH eru nú um 150 talsins.
Gildir fyrir árið 2012.