
Hverjum félagsmanni Icelandair Golfers er heimilt að leika 5 hringi án endurgjalds á Hlíðarendavelli sumarið 2012. Hringina er heimilt að leika þriðjudaga - fimmtudaga gegn framvísun félagsskírteinis Icelandair Golfers.
Hlíðarendavöllur var lagður á árunum 1980-1983 af eldhugum sem unnu í sjálfboðavinnu dag og nótt við að gera hann sem best úr garði. Niðurstaðan varð glæslegur golfvöllur sem er áskorun fyrir alla kylfinga. Völlurinn er í hópi lengstu golfvalla landsins og er sérstaklega erfiður fyrir þá sem spila á rauðum teigum. Af hvítum teigum er völlurinn tæplega 6000 metrar. Af gulum 5636 metrar og af rauðum 4876 metrar.
Gildir fyrir árið 2012.