
Icelandair Golfers og Golfklúbbur Vestmannaeyja hafa gert samkomulag um að allir félagar í Icelandair Golfers fái aðgang að golfvellinum í Vestmannaeyjum gegn 1.500 kr. vallargjaldi og framvísun félagsskírteinis Icelandair Golfers. Hámark 5 skipti á golfsumri.
Golfklúbbur Vestmannaeyja var stofnaður 4. desember 1938. Golfvöllur klúbbsins er einhver óvenjulegasti og jafnframt skemmtilegasti völlur landsins. Hann er í Herjólfsdal og endar bratt í sjávarhömrum vestantil á Heimaey. Þeir sem leika á þessum velli verða að geta tekið vindinn með í reikninginn þegar þeir slá boltann því logndagar eru fáir í Eyjum. Það er stutt milli allra staða á Heimaey, þannig að öll önnur afþreying og ferðaþjónusta er innan seilingar.
Gildir fyrir árið 2012.